Framleiðsla myndefnis
Almenn framleiðsla
Við vinnum með fjölbreytt myndefni fyrir ólík tilefni og miðla. Þar má nefna auglýsingar, kynningarefni, tónlistarmyndbönd og annað sérsniðið efni. Verkefni geta spannað allt ferlið frá hugmynd og undirbúningi til upptöku, eftirvinnslu og fullunninnar lokaútgáfu. Umfang eftirvinnslunnar getur verið allt frá hefðbundinni vinnslu til flóknari samsetninga.
Viðburðir og ráðstefnur
Þegar kemur að ráðstefnum, fundum og viðburðum geta verkefnin verið fyrirlestrar og pallborð en líka yfirlitsmyndefni, stemningsmyndbönd og taktföst upphafsmyndbönd sem byggja upp stemningu, undirstrika áherslur og setja tóninn fyrir daginn.
Útsendingar og streymi
Beinar útsendingar og streymi fyrir fjölbreytt verkefni, stór og smá. Þar undir falla meðal annars fjölvélauppsetningar, upptaka samhliða útsendingu og útfærsla útsendinga fyrir vefinn. Við höfum yfir að ráða fjölda stúdíóupptökuvéla sem eru vel til þess fallnar að mæta ólíkum þörfum í verkefnum af þessu tagi.
Klipping og eftirvinnsla
Klipping, litavinnsla, hljóð og önnur úrvinnsla undir einu þaki. Jafnframt tökum við að okkur sérhæfðari eftirvinnslu eins og greenscreen, þrívídd og frekari tæknilegri útfærslur.
Iceland Geothermal Conference – Promotional Video
EVE Online – Fanfest 2025 – Promotional Video
International Summit on The Teaching Profession – Conference Overview Video
Iceland Geothermal Conference – Conference Overview Video