Við vinnum náið með CCP Games að fjölbreyttum verkefnum tengdum Eve Online, bæði innan leiksins og fyrir samfélagið. Þetta nær yfir upptökur og hluta af eftirvinnslu á seríum eins og The Pulse, myndbandsupptökur fyrir Eve Fanfest, sem og efni fyrir markaðsherferðir og kynningar.

Við vinnum einnig á alþjóðlegum vettvangi, þar á meðal á skrifstofum CCP í London, þar sem við tökum upp efni fyrir Vanguard leikinn. Að auki vinnum við með efni fyrir Galaxy Conquest og EVE Frontier.

Samstarfið nær einnig yfir aðkomu að Alliance Tournament XX, þar sem við sjáum um tæknistjórn og framleiðslu á beinni útsendingu sem náði yfir 4 daga.

4. Eftirvinnsla
„Eftirvinnslan felur í sér klippingu, litaleiðréttingu, hljóðvinnslu og hreyfigrafík. Við vinnum með græntjald til að fjarlægja eða skipta út bakgrunnum, auk þess sem texta og grafík er bætt við eftir þörfum.“

 

1. Hugmyndavinna og skipulagning
„Hugmyndir eru mótaðar frá grunni, handrit þróuð með viðskiptavinum og framleiðsluferlið skipulagt í hverju skrefi.“

2. Myndbandsupptökur
„Efni er tekið upp fyrir markaðsmyndbönd, auglýsingar, viðburði og ráðstefnur með fjölbreyttum tækjabúnaði.“

3. Beinar útsendingar
„Fjölkameravinnsla og streymi er útfært fyrir ráðstefnur, viðburði og sérstaka atburði.“

 

Sérsniðið efni fyrir viðburði
„Við framleiðum efni sem tengist einstökum viðburðum, eins og inngangsmyndbönd, samantektir eða lifandi skjámyndir fyrir sýningartjalda.“

Við tökum að okkur:
Ímyndarmyndbönd
Starfsmannamyndbönd
Viðburðakynningar
Vörukynningar
Samfélagsmiðlaefni
Kvikmyndatengd verkefni
Þjálfunarmyndbönd
Efni fyrir streymisvettvang
Live-action videóseríur
Grafísk kynningarmyndbönd
Árshátíðarmyndbönd
Vefstreymi fyrir ráðstefnur og viðburði

Lausnir sem við bjóðum upp á:
Hægmyndatökur (slow-motion)
Hljóðupptökur á staðsetningu
Vefstreymi í rauntíma
Útsendingar í rauntíma
Skjávörpuútfærslur
B-roll tökur
Augnabliksmyndbönd frá viðburðum
Rauntíma klippingar fyrir streymi
Sérhannaðar grafískar lausnir
Raddsetningu og hljóðblöndun
Samsetningar á efni frá ólíkum upptökustöðum