Stafrænir heimar
Þrívíddarumhverfi opna nýjar leiðir til að skoða og kynna rými, hönnun og hugmyndir.
Með nákvæmri endurgerð og gagnvirkri framsetningu er hægt að skapa stafræna eftirlíkingu af byggingum og sýningum til að nota í kynningar, fræðslu eða hönnunarvinnu. Þau geta verið hluti af hönnunarferli, sýndarúttektum og verkfræðilegri úrvinnslu. Með þeim má gera sýningar aðgengilegar á nýjum miðlum, bæta upplifun notenda og leyfa upplifun mannvirkja áður en þau verða að veruleika.
Perlan – Náttúrusafn
Við erum að þróa stafræna útgáfu af náttúrusýningu Perlunnar þar sem rými, sýningarmunir og frásagnir eru endurskapaðar í sýndarheimi.
Verkefnið miðar að því að gera náttúrufyrirbæri aðgengileg á nýjan hátt með gagnvirkri upplifun. Út frá teikningum, hönnunarskjölum og ljósmyndum var byggt stafrænt umhverfi sem endurspeglar sýninguna.
Í stað uppstoppaðra dýra og kyrrstæðra sýningargripa birtast nú lifandi stafrænar útgáfur. Áhersla var lögð á að halda efni sýningarinnar sem næst upprunalegu formi en nýta um leið möguleika stafrænnar tækni til að auka gagnvirkni og dýpka upplifun. Jafnframt erum við að leikjavæða sýninguna til að nota í kennslu fyrir grunnskólabörn.
Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús
Við erum að smíða stafrænan tvíbura af Hörpu sem gerir fólki kleift að ganga um og upplifa bygginguna á nýjan hátt.
Harpa er einstakt mannvirki sem er þekkt fyrir arkitektúr og birtuspil í glerhjúpnum. Með stafrænu líkani er hægt að skoða húsið í mismunandi birtuskilyrðum og sjá hvernig hönnunin breytist eftir tíma dags og árstíðum.
Í þessu líkani er hægt að færa, raða og útfæra að vild og sýna svo gagnvirka útkomuna hvar sem er í gegnum alla algengustu netvafrana.


















