Sviðsmyndir lifna við
Við smíðum sviðsmyndir og vörpum þrívíðri grafík á yfirborð þeirra.
Með þessari aðferð lifna formin við, mynda sjónhverfingu og gefa flötum yfirborðum dýpt og hreyfingu.
Í ferlinu er prentuð minni frumgerð í 3D módeli þar sem myndefnið er hannað og prófað áður en stærri útgáfa er smíðuð.
Með þessu er hægt að skoða hönnun og myndefni áður en farið er í fulla stærð.
IGC – Harpa
IGC (International Geothermal Conference) er alþjóðleg ráðstefna um jarðhita og sjálfbæra orkunýtingu, haldin í Hörpu árið 2024.
Fyrir viðburðinn voru smíðaðir þrír 180 cm háir stafir sem mynduðu skammstöfunina IGC og staðsettir á sviðinu.
Þrívíðri hreyfigrafík var varpað á stafina sem gæddi þá lífi á sviðinu.
Uppsetning og prófanir með þrívíddarprentuðu módeli. Stafirnir eru 10cm á hæð.
Sviðsmynd í notkun á sviði í Hörpu
UT | messan – Harpa
UT messan er stærsti tækniviðburður ársins á Íslandi þar sem fagfólk, fyrirtæki og áhugafólk um tækni koma saman til að kynna nýjungar og deila þekkingu.
Við smíðuðum merki UT í 180cm hæð og vörpuðum opnunaratriði í takt við taktfasta tónlist. Síðar var sviðsmyndinni komið fyrir í Rímu fyrir gesti og gangandi að skoða nánar.
Þrívíddarprentað módel til að prófa og hanna sýninguna.
Sviðsmynd í notkun á Eldborgarsviði Hörpu og í Rímu.








