Sviðsmyndir lifna við

Við smíðum sviðsmyndir og vörpum þrívíðri grafík á yfirborð þeirra.

Með þessari aðferð  lifna formin við,  mynda  sjónhverfingu og gefa flötum yfirborðum dýpt og hreyfingu.

Í ferlinu er prentuð minni frumgerð í 3D módeli þar sem myndefnið er hannað og prófað áður en stærri útgáfa er smíðuð.
Með þessu er hægt að skoða hönnun og myndefni áður en farið er í fulla stærð.

IGC – Harpa

IGC (International Geothermal Conference) er alþjóðleg ráðstefna um jarðhita og sjálfbæra orkunýtingu, haldin í Hörpu árið 2024.

Fyrir viðburðinn voru smíðaðir þrír 180 cm háir stafir sem mynduðu skammstöfunina IGC og staðsettir á sviðinu.

Þrívíðri hreyfigrafík var varpað á stafina sem gæddi þá lífi á sviðinu.

Uppsetning og prófanir með þrívíddarprentuðu módeli. Stafirnir eru 10cm á hæð. 

Sviðsmynd í notkun á sviði í Hörpu

UT | messan – Harpa

UT messan er stærsti tækniviðburður ársins á Íslandi  þar sem fagfólk, fyrirtæki og áhugafólk um tækni koma saman til að kynna nýjungar og deila þekkingu.

Við smíðuðum merki UT í 180cm hæð og vörpuðum opnunaratriði í takt við taktfasta tónlist. Síðar var sviðsmyndinni komið fyrir í Rímu fyrir gesti og gangandi að skoða nánar.

Þrívíddarprentað módel til að prófa og hanna sýninguna.

Sviðsmynd í notkun á Eldborgarsviði Hörpu og í Rímu.

Mannauðsdagurinn

Mannauðsdagurinn er árlegur viðburður þar sem fagfólk í mannauðsstjórnun kemur saman til að fjalla um þróun, stefnumótun og nýjar strauma í faginu.

Fyrir viðburðinn prentuðum við merki Mannauðsfélags Íslands  með um 80 cm háum stöfum. Vörpuðum svo svo litum á merkið sem mynduðu lifandi hreyfingu.